Ástralíuhrúturinn
Nú er komið að því
Síðustu dagarnir hér í Adelaide. Tíminn hérna er búinn að vera ótrúlega fljótur að líða enda alltaf nóg að gera og gaman gaman. Veðrið búið að vera fínt þó er búið að vera svoldið vindasamt. Síðasta vika var fín með einum degi sem var 35°C. Ég fór á ströndina og Erna í próf en hún hitti mig þar á eftir. Annars var ég að vinna alla hina dagana og líka á laugardaginn hjá þýska kallinum. Prílaði lengst upp í tré hjá honum og sagaði greinar sem hengu yfir fuglahúsið hans. Færði síðan pálma og fleira skemmtilegt. Var með myndavélina með mér og vildi endilega ná mynd af þessu skemmtilega fólki. Það varð uppi fótur og fit þegar ég tók upp myndavélina, konan hljóp inn, skellti á sig meik up og fór í spariskóna. Þau höfðu aldrei séð stafræna myndavél áður og vissu ekki einu sinni að þessi tækni væri til. Urðu alveg dolfallin þegar þau gátu séð myndirnar á skjánum á myndavélinni. Tók nokkrar myndir í garðinum þeirra sem er nota bene mjög flottur. Þau vildu endilega kaupa af mér myndirnar og á ég eftir að sjá til hvort ég hef tíma til þess að framkalla og græða smá pening. Þetta lið er endalaus uppspretta gleði!!!!!
Héldum kveðjupartý á laugardagskvöldið. Var mjög gaman, nóg af fólki, matur, kökur, vín og bjór.
Gærdagurinn fór svo í leti á strönd og í Glenelg þar sem við röltum í búðir og fengum okkur lunch.
Fór að vinna í dag hjá Greg og kláraði að mála nýja skrifstofuhúsnæðið að utan. Hann var alveg þvílíkt ánægður með mig og fékk líka fullt af pening í laun.
Á morgun er svo stúss dagur með strönd inn á milli. Þurfum að gera allskonar dót eins og loka símanum og rafmagninu og fá endurgreiddan skatt sem er skriffinnska dauðans. Borgaði af tveimur vinnum skatt og þarf að fara bæinn á enda til að fá það til baka. Keyptum í matinn fyrir Tasmaníugönguna áðan. Takk Una Björk fyrir leiðbeiningar. Hlökkum til að fara í þessa gönguferð á eftir að vera æði. Spurning hvort við sjáum Tasmanian Tiger eða ekki......(sumir segja að tegundin sé útdauð aðrir ekki.......) sjáum vonandi Tasmanian Devil!!!!
Til hamingju með afmælið í gær Smári Þór frændi. Hringdi í hann í gær og hann bara hló að mér.... Orðinn svaka stór 1. árs.
Hlakka til að sjá ykkur öll eftir tæplega mánuð!!!!!!!
Hæ allir saman
Bongó blíða loksins komin til Adelaide. Í gær var tæplega 30°C og sól. Ég fór að vinna hjá Greg hérna neðar í götunni að mála bílskúrinn. Það var mjög fínt að geta gengið í vinnuna og sleppt strætó einu sinni. Málaði semsagt bílskúrinn í nýja húsinu sem hann er að byggja. Fyndið að það var svo heitt að ég gat málað aðra umferð nánast um leið og ég var búinn með fyrstu umferð. Erna kom svo með lunch sem við borðuðum á ströndinni. Ég var að vinna í 2 mín fjarlægð frá ströndinni svo það var fínt að fara niður á strönd í hádegismat. Erna hélt svo áfram að læra á ströndinni og ég flýtti mér að klára málningarvinnuna. Var búinn um 4 og enn var steik og sól. Náði að flatmaga í sólinni í klst áður en byrjaði að hvessa aðeins. Lögðum þá af stað heim en komum við hjá Greg og Allison á leiðinni. Dóttir þeirra (ca 12 ára) er að gera verkefni um jólahald á Íslandi og hún fékk beint í æð frá íslendingunum hvernig við höldum jólin. Þegar við vorum að útskýra fyrir henni á ensku með jólasveinana okkar og Grýlu þá komst maður ekki hjá því að finnast þetta hljóma ansi hreint grimmilega. Fórum frá þeim í jólaskapi eins mikið og það er hægt í sól og hita.
Í dag er spáð 37°C og ég tók mér frí í vinnunni. Annars er það erfitt núna um þessar mundir því allir eru vitlausir að fá mig í vinnu áður en ég fer. Mér finnst erfitt að segja nei og nú þegar er ég bókaður flesta daga þangað til við förum. Fáum þó allaveganna í ferðapening fyrir TasmaníuJ
Já dagurinn í dag á að fara í leti, ekki oft sem maður fær svona góða daga hérna. Erna fer í próf á eftir og ætlar svo að hitta mig í Glenelg sem er aðalstrandhverfið hérna rétt hjá.
Vikan er annars búin að vera fín, vinna hér og þar.
Á föstudagskvöldið síðasta fórum við í late night shopping í borginni. Fórum í kínahverfið og fengum okkur ódýrasta mat sem ég hef keypt á veitingastað. Þetta var svona food court með fullt af veitingastöðum aðallega asískum og við borguðum 300 kr ísl á mann fyrir fullan disk af kínverskum mat, við gátum valið á milli 15 rétta og diskurinn var náttútulega kúffylltur. Maturinn var ágætur og gaman að prófa þetta.
Á laugardaginn fórum við með Ernu og Joseph í Barossa Valley og smökkuðum mikið af víni. Fékk mér meat pie í hádegismat með ‘roo (kengúrukjöti semsagt). Stoppuðum á fullt af víngerðum og smökkuðum ansi góð vín. Fórum á Jacob’s Creek sem er víst mjög frægt út um allan heim. Annars fannst okkur litlu staðirnir miklu skemmtilegri og vinarlegri, t.d. Bethel og svo einn staður ekki kannski lítill en mjög flottur, Yalumba. Þessi víngerð er enn í eigu sömu fjölskyldunnar og þar voru ótrúlega flottar byggingar og notarlegt andrúmsloft. Þegar heim var komið var ekki laust við að maður væri með smá hausverk eftir allar þessar vínsmakkanir.
Rigning framundan á morgun en svo lofar helgin góðu. Síðasta helgin okkar í Adelaide að sinni.
Hey dudes!
Vikan er búin að vera ansi fljót að líða og skemmtileg helgi framundan...
Já nóg af vinnum í vikunni. Fór að vinna hjá fastakúnna á þriðjudaginn og hélt svo áfram að vinna í Flinders Uni að taka til á lager á miðvikudaginn. Svo kom að brandarafólkinu þýska í gær. Dagurinn byrjaði á því að kallinn hringdi og hætti við vinnuna því það var rigning. Ok það var ágætisdemba en ég var til en kallinn tók það ekki í mál og sagði: You could get a chill and die. Jæja sagði ég þá bara og átti notarlega morgunstund með Ernu próflestrarhesti. En þegar kom að hádegi þá var alveg hætt að rigna og hringdi ég í kallinn og sagði honum að pikka mig upp. Náði semsagt að vinna alveg 5 tíma hjá þeim. Var búinn klukkan 6 og hélt ég að ég kæmist heim strax en þau neituðu að keyra mig fyrr en ég fengi mér að borða og líka náttúrulega ginger ale og brandy!!! Sat í eldhúsinu hjá þeim hlustandi á allskonar bull um að bjór væri krabbameinslækning ofl. Neyddist líka til að borða eina sneið af rammáfengu austurísku heslihnetukökunni þrátt fyrir mörg undanbrögð.
Í gærkvöldi fórum við svo í norskar vöfflur en við vorum að kveðja eina norska stelpu sem er í námi hérna í Flinders en hún var á leið heim í frí. Norsku vöfflurnar eru eiginlega alveg eins og íslensku nema það er sett allskonar dót annað en rjómi. Hún var með sultu, smjör, sykur og norskan Gudbrandstal geitaost!!!!
Fór að vinna í dag fyrir Greg vin minn og var í góðum málum. Er eiginlega búinn að sjá um að mála nýja skrifstofuhúsnæðið hans og í dag málaði ég húsið að utan. Talaði svo við Greg um hitt og þetta og m.a. að við værum að skoða að senda dót heim með frakt. Haldiði ekki að hann þekki ekki einhvern hjá Quantas flugfélaginu og ætlar að reyna að redda okkur extra allowans. Veit ekki hvort gengur en má reyna.....
Já á morgun erum við að fara í Barossa Valley með Joseph, Ernu og Viktoriu Guðrúnu. Þetta er eitt frægasta vínhérað í Ástralíu og verður gaman að skoða þetta og smakka smá rauðvín líka..... en auðvitað er þessi ferð farin í garðyrkjufræðilegum tilgangi til að sjá hvernig þeir rækta vínvið. Aldrei að vita nema maður fari að rækta vínvið á Íslandi (og fá bjartsýnisverðlaun Bröste í leiðinni.....)
Vorum að fá voða fyndið sms frá einhverjum sem hefur sent á rangt númer. Ástralar eru semsagt mikið fyrir að stytta orð og svo hljóðaði smsið: Hey dan it is weapon yr dog is wiked as wan hey u no steph black well um do u have her mob num if u do can you text me bak with her num thxs dude cya tomo. Já mjög fyndið og mikið slangur. Því miður vitum við ekki númerið hjá Steph svo weapon verður að redda því einhvern veginn öðruvísi.
Já helgin var chilluð hjá okkur eftir erfiðan föstudag. Veðrið er ekki búið að vera upp á marga fiska og skrítið hvað okkur er kalt hérna þó að sé meira en 15°C hiti. Ástralarnir eru þó yfir sig ánægðir með rigninguna og eins og Joseph vinur okkar sagði: Good to have some rain otherwise we would have to drink mud all summer. Það er erfitt að skilja ennþá hversu mikilvægt vatnið er hérna.
Önnur vinnuvika framundan fyrir mig. Fór að vinna í háskólanum í dag. Var að taka til á lager fyrir elhúsin. Svo er bara garðyrkja það sem eftir er vikunnar og kannski málningarvinna á föstudaginn.
Á fimmtudaginn fer ég aftur til þýska klikkaða kallsins, hlakka mikið til þess. Hann semsagt hringdi á miðvikudaginn síðasta og var mikið niðri fyrir. Erna var ein heima og reyndi að skilja hvað maðurinn var að bulla en komst svo að því að hann var að reyna að spyrja um mig The Iceman. Þegar hann komst að því að ég væri ekki heima þá spjallaði hann bara við Ernu og ætlaði hún aldrei að losna við hann. Hann hafði heyrt um eldgosið á Íslandi og sagði hvað eftir annað við Ernu: Explosion in Iceland. Svo bullaði hann mikið um það að hún ætti að elda fyrir mig um kvöldið og vera góð við mig. Þessi kall er algjör brandari.
Svo hringdi vinnumiðlunin í háskólanum í mig á fimmtudaginn og sagði mér að þau væru með feedback frá einum vinnuveitanda. Hver var það annar en þýskarinn sem sagði við þau: This Icelandic guy is more than a man. Þegar ég heyrði þetta þá dó ég úr hlátri.....
Það er þó allaveganna ágætt að fólk er ánægt með vinnuna mína hérna.
Sjáumst
Hi
Var ad setja inn myndir fra Kangaroo Island og kappreidunum i vikunni. Njotid
Rigning og spad trumuvedri i kvold. Var ad vinna skitajob i gaer og vard halfveikur eftir tad. For semsagt a voda fint Miramonte Estate en tad er einhvers konar stadur tar sem folk byr innan um haa mura og risa hlid tar sem allt er vaktad. Maetti semsagt ad tessu hlidi og pikkadi inn einhvern code og komst ta inn. Helt ad tetta yrdi nu ekkert erfitt job en annad kom i ljos. Kom ad tessu husi og gardurinn leit mjog vel ut en tegar eg kom i bakgardinn ta fekk eg sjokk. Eins og tad hafi ekki verid farid tar inn i morg ar. Byrjadi a tvi ad taka konguloavefi med kusti af skyggni og tad var hrikalega mikid ryk tar. Fekk orugglega eitthvad oni mig tvi eg hostadi og hnerradi tad sem eftir var dagsins. Eftir tetta var eg ad reita arfa og jardvegurinn var svo turr af allt tyrladist upp og ekki hjalpadi tad mer. Og eftir 8 tima pul med 700 kall a timann og 10 min matarhle var eg alveg buinn. Fer sko ekki tarna aftur enda niskur kani sem byr tarna.
Ja tad er ekki bara legid i leti her enda verdur madur ad eiga fyrir saltinu i grautinn. Haha
I dag atti eg ad maeta hja Les vini minum sem eg hef farid til reglulega en vegna mikillar rigningar ta var tvi frestad. Erna tarf ekki ad maeta meira i skolann og bara profin framundan.
Skritid ad fretta af eldgosi heima.
Passid ykkur nu a oskunni
Hvað segið þið þá?
Letidagur í dag. Tók mér bara frí í vinnu og Erna var ekki í Uni þannig að við fórum bara að dandalast. Byrjuðum á því að sofa út, en morgunhaninn ég gat ekki sofið lengur en til 8 og kúrði þá og las bók með Ernu steinsofandi mér við hlið. Fórum um hádegi á kappreiðar og það var nú meiri glamúrinn. Allir í jakkafötum og konurnar í þvílíkum kjólum og með svaka hatta. Okkur fannst nú gaman að sjá þetta allt saman þó við pössuðum ekki alveg inní hópinn. Vorum að spá í að dressa okkur upp en það var svo mikið rok að við nenntum því ekki. Fórum þó snyrtilega klædd en vorum samt eins og sauðsvartur almúginn innan um uppstrílaða liðið. Svo voru bara allir á skallanum, drekkandi bjór og kampavín um miðjan dag. Við vildum endilega sjá hesta á hlaupum og var það ekki auðvelt því þetta snérist mest um sósíalinn. Þó sáum við nú þrjú hlaup og foru þeir geyst. Gaman að sjá þennan kúltúr en við vorum ekki alveg að fatta þetta allt saman og hvað þá öll veðmálin. Ætluðum að veðja kannski 5 bucks en fórum síðan þar sem bookiearnir voru og klóruðum okkur í hausnum. Þannig að við eyddum bara peningnum frekar í bjór og rauðvín:)
Eftir þetta gerðumst við menningarleg og fórum á safn í miðborginni. Þar var fullt af aboriginal dóti og öðru t.d. flóru og fánu Ástralíu sem var mjög áhugavert að sjá. Komumst líka að því hversu mikið við erum búin að sjá af þessu öllu saman.
Erum núna að átta okkur á því að það er að styttast allverulega í þessu hjá okkur og aðeins 3 vikur eftir í Adelaide og svo 3 1/2 í ferðalag eftir það. Þá fáið þið að njóta okkar aftur og við ykkar....
Reynum að koma með hlýju og brúnku frá Ástralíunni
Ciao
Hlynski
Hæ!
Það er búið að vera nóg að gera eins og sést á því að það líður vika á milli blogga hjá manni.
Já síðasta vika var fun packed með fullt af vinnu út um allt. Ekki mikið markvert en fór þó að vinna hjá mjög skrítnu og skemmtilegu fólki. Kallinn er sjötugur og er þýskur, búinn að búa hér í Adelaide í 40 ár og talar ennþá með feitum þýskum hreim. Mjög fyndinn karakter fyrir utan það að hann lítur nákvæmlega út eins og Walter Matthau heitinn. Konan hans er svo alveg kapítuli út af fyrir sig. Hún er áströlsk og er hálfblind og ekki allar skrúfurnar vel hertar. Ég hringdi semsagt í þau á mánudaginn og ætlaði aldrei að losna úr símanum. Svo kom kallinn bara og náði í mig þegar ég fór að vinna hjá þeim á miðvikudaginn. Kom á staðinn og þetta var bara að grafa skurð fyrir gasleiðslu ekkert rosalegt. Byrjaði ekki vinnan á því að það komu tveir litlir pulsuhundar og voru alveg brjálaðir, hlupu á eftir mér um allt og munaði engu að ég hefði endað í hundskjafti, ótrúlegt hvað svona lítil dýr geta verið grimm. Svo kom að hádegismatnum. Fékk vel og mikið að borða og eftirrétturinn var svo rammáfengur að sveif á mig. Þetta var semsagt austurrísk heslihnetukaka full af brandy og koníaki, ís, ostakaka og eitthvað melónuhlaup og ofaná þetta var hellt slatta af Kahlua. Þetta bragðaðist náttúrulega eins og ég veit ekki hvað. Ég reyndi að koma þessu öllu niður og var farinn að kyngja með vatni áður en ég sagðist ekki geta meira, maður vildi ekki vera dónalegur. Þau voru svo ánægð með mig að þau bókuðu mig aftur og konan sagðist ætla að gera meira af svona köku fyrir mig og fór hrollur um minn þá...
Anyways fórum til Kangaroo Island um helgina. Frábær helgi þar sem við sáum ótrúlega mikið af dýralífi og náttúru. Sáum Little penguins koma á land að kvöldi í tugatali og komumst um metra frá þeim sem var alveg stórkostleg upplifun! Gistum svo á tjaldsvæði við strönd og vorum ein á tjaldsvæðinu. Sofnuðum og vöknuðum við lætin í mörgæsunum, ótrúlega magnað. Sáum hvernig Eucalyptus olía er búin til og fórum á hunangsfarm sem var áhugavert. Annað highlight var svo Seal Bay en þar fórum við niður á strönd að sjá Australian Sealions. Sáum sæljón í hundraða tali liggjandi á ströndinni og komumst í um 10 m fjarlægð að þeim. Ótrúlegir fitukeppir þessi dýr en magnað að sjá þau svona út í náttútunni. Við skoðuðum líka dropasteinshella og sand dune sem er kölluð Little Sahara. Sáum líka á einum stað colony af New Zealand Fur Seals sem var álíka gaman en komumst ekki jafnnálægt þeim. Eitt kvöldið fórum við svo í göngu í rökkrinu um waterholes og sáum platypus eða eins og hann kallast á ylhýra, breiðnefur. Það var mjög erfitt að sjá hann en við náðum einu glimpsi :) Þetta svæði var ótrúlega fallegt og froska og fuglahljóðin voru svo mikil að maður var alveg að ærast. Þegar við keyrðum í áttina að tjaldsvæðinu þá sáum við svo mikið að næturdýrum að það var ótrúlegt. Sáum Echidna (mjónefur sem lítur út eins og broddgöltur) sem er ekki algengt. Mjög gaman að sjá tvær tegundir af þremur af monotrem (nefdýr) í heiminum á innan við 10 mín. Sáum líka fullt af possum og öðru dýralífi.
Finnst ég vera að telja upp endalaust en læt þetta vera svona...
Dagurinn í dag var svo annar gleðidagur með þýska gaurnum og klikkuðu konunni hans. Var að klippa hekk og tré fyrir þau og svo mokaði ég út úr hænsnakofanum. Á meðan ég var að því þá sá ég tvær mýs inni í kofanum. Kallinn kom hlaupandi og bað mig að reka þær út og hann ætlaði að ná þeim. Ég náði að reka þær út en ein hljóð þá beint upp um buxnaskálmina á kallinum. Ég get svo svarið það að þetta var það fyndnasta sem ég hef séð lengi. Kallgreyið hljóp um allt hristandi skálmina og músin fór ekki fyrr en hann náði að rífa buxnurnar af sér. Ég dó næstum því úr hlátri og er enn að hlæja að þessu, kvikindið ég.
Á morgun er frí hjá okkur og við ætlum að fara á kappreiðar. Þetta er svaka stór dagur og hlökkum við til að upplifa þetta enda mjög mikill kúltúr fyrir þessu hérna.
Bið að heilsa