Ástralíuhrúturinn
Jæja þá erum við komin "heim" úr 10 daga ævintýraferð. Ætla að skrifa smá ferðasögu meðan Erna er að catcha up í lærdómnum. Set líka inn nýjar myndir!
21-22.maí
Ferðin hófst með smá falli en það á víst að heita fararheill. Vorum búin að skoða strætókerfið voðavel og ákveða hvaða strætó við ætluðum að taka en hann fór ekki alveg eins nálægt lestarstöðinni og við héldum. Hlupum með sitthvor 20 kg eða svo á bakinu nokkra km og rétt náðum að tjékka okkur inn í lestina. Þegar ég sá "The Legendery Ghan" þá datt mér nú bara skódi í hug en lestin reyndist vera meira kósí en ég hélt. Lestarferðin tók 19 klst. og við náðum að sofa töluvert í rúmgóðum sætum. Þegar við komum svo til Alice Springs þá beið flokkur fólks að bjóða hinar og þessar ferðir um outbackið og við völdum bara ódýrasta pakkann! Okkur var þá skutlað upp í rútu og keyrð á hostel sem við gistum á fyrstu nóttina.
23.maí
Vöknuðum hrikalega snemma, 5:30 og fengum ristað brauð með sultu og kaffi í morgunmat. Svo var hópnum smalað í litla rútu sem var ætlað að fara með okkur hundruð km næstu þrjá daga. Hópurinn var 21 manns + guidinn, aðallega bretar, írar, skotar og kanar. Svo vorum við tvö frá Íslandi og önnur tvö frá Brasilíu. Keyrðum í nokkra klst fyrst og fórum þá á kamelbak sem var ágætisupplifun. Var þó svoldið túristalegt og sorglegt að fara einn hring og sjá tugi annarra gera það sama. Keyrðum síðan aftur í nokkra klst og komum þá í Kings Canyon. Þetta er gullfallegt gljúfur og þegar við löbbuðum inn gilið þá fékk guidinn næstum hjartaáfall af spenningi því hann sá smá vatn leka niður klettana. Don´t get this wrong, þetta var mjög fallegt en fyndið að vera vitni að því hvað vatn er mikilvægt hér í þurrustu heimsálfunni. Gengum síðan að "Garden of Eden" þar sem ég, Erna og tvær kanadískar stelpur stungum okkur til sund í 17°C köldu vatni, skemmtilegt en kalt! Eftir þetta keyrðum við enn í nokkrar klst (risaland!!!) til þess að fara í náttstað. Áttum að gista undir stjörnuhimni en við vorum það "heppin" að lenda í rigningu þannig að við gistum undir bárujárnsskýli. Kvöldmaturinn var frekar skemmtilegur, kamelstappa.... en bragðaðist bara eins og venjulegt kjöt.
24.maí
Kata Tjuta var framundan og enn keyrðum við í nokkra klst. Vorum samt frekar spennt því við sáum fyrst Uluru á leiðinni til Kata Tjuta. Þegar við sáum Uluru við sjóndeildarhringinn brutust út fagnaðarlæti í rútunni, ótrúleg stemming. Fórum í göngutúr um "Valley of the Winds" í Kata Tjuta og upplifðum ótrúlegt landslag, gróður og liti. En allir voru mun meira spenntir fyrir Uluru og nú lá leiðin þangað. Fórum á Cultural centre nálægt Uluru og skoðuðum mikið dót um menningu Anangu aboriginal fólksins sem á svæðið. Svo keyrðum á sólseturbílastæði svoldið frá Uluru og biðum eftir litadýrð í sólarlaginu. Keyrðum að STÓRU bílastæði og guidinn byrjaði að elda. Von bráðar var bílastæðið fullt af rútum, bílum og nokkur hundruð manns að sjá það sama og við. Frekar commercial en þetta var þess virði. Litirnir í Uluru voru geggjaðir og ótrúlega súrrelaískt að upplifa þetta. Hugsuðum mikið til þín mamma!!!!:) Svo var keyrt aftur á náttstaðinn og farið í leiki við eldinn, hlustað á Dingó ýlfur í fjarska, borðað kengúruhala og sofið loksins undir stjörnunum. Ég sá 10 stjörnuhröp en greyið Erna ekki nein...
25.maí
kemur meira á morgun sorry!! Er að fara í bíó!!!
G'day.
Hows it going...
Erum a leidinni heim ur aevintyraferd i outbacki astraliu (t.e. midjunni). Buid ad vera frabaert, ULURU (upplifdum tetta fyrir tig lika mamma), Thorny devil, Dingo, Bushwalkin, Kings Canyon, Kata Tjuta ofl. Endalaust fjor.
Get ekki skrifad mikid nuna er ad fara i lestina fra Alice Springs en faid myndir og ytarlegri ferdasogu a manudaginn lofa..
kvedja Hlynur og Erna
Góðan daginn góðir hálsar og aðrir líkamshlutar...
Það er stutt á milli gamans hjá okkur núna. Eftir frábæra síðustu helgi (sjá ferðasögu á blogginu hennar Ernu) þá erum við að fara að leggja í hann aftur í dag. Tökum lest kl 17 og verðum komin upp í miðjuna þ.e. Alice Springs kl 12 daginn eftir. Ætlum að taka fyrsta daginn rólega í AS og fara á tourist information og skoða hvort við eigum að fara í pakkaferð eða hvort við getum farið þetta sjálf. Pakkaferðirnar fara með mann frá AS til Uluru og Kings Canyon o.fl. en þær kosta mikið. Það eru tjaldsvæði við alla þessa staði með aðstöðu og rennandi vatni þannig að við sjáum til hvað við gerum en eitt er víst að þetta verður geggjað við verðum örugglega hneggjandi af gleði þarna......haha
Er búinn að vera á köfunarnámskeiði í vikunni, geggjað gaman (hvað er málið með þessa geggjum allt í einu..). Tók skriflega prófið í gær og kafaði í sundlauginni á miðvikudaginn. Ótrúlegt að geta andað undir vatni. Fannst það ekkert mál en einn gæinn sem var á námskeiðinu gugnaði eftir mínútu í vatninu, vorkenni honum svoldið...
Síðan gerðum við alls konar æfingar og þær gengu flestar vel en ég átti í smá erfiðleikum með að anda án þess að hafa mask. Skrítið að anda ekki með nefinu ef maður er að anda með munninum... Er búinn í bili en fer að kafa í sjónum í tvo daga þegar við komum heim úr ferðinni.
Jæja nóg í bili
verð að fara að pakka fyrir ferðina
Hæ!
Ér er u.þ.b. alveg næstum því að átta mig á því að ég er hérna megin á jörðinni og þið eruð hinum megin.... Búin að vera bongó blíða síðan ég kom hérna, 20-25°C og sól á daginn en síðan brummar sólin niður á nokkrum mínútum um sex og þá verður oft svoldið kalt. Skrítið að sjá haustfíling hérna þar sem lauftrén eru að byrja að fella laufin en samt er svona heitt ennþá. Ég er búinn að vera mikið á ferðinni síðan ég kom og er farinn að kynnast borginni ágætlega. Á sunnudaginn hittum við vini hennar Ernu á jazzstað í hádeginu. Var þægileg lunch tónlist. Þarna var fólk frá þýskalandi, Finnlandi, Japan, Noregi, Danmörku og síðast en ekki síst Íslandi:)
Eftir það fórum ég og Erna í grasagarðinn. Ótrúlega fallegur garður með trjám sem ég hef aldrei séð áður og líka tré sem maður er vanur að sjá inni í stofu á Íslandi. Þarna voru t.d. Ficus macrophylla, sem var svo stór að ég fór næstum því úr hálsliðnum við að skoða. Tók ekki neinar myndir en lofa að fara aftur þarna fljótlega og mynda placið.
Mánudagurinn fór í afslöppun. Var ótrúlega fljótur að ná mér eftir ferðalagið og að snúa sólarhringnum við en var samt svoldið þreyttur ennþá. Á þriðjudaginn fór ég í Divers Medical, sem er læknisskoðun fyrir köfunarnámsskeiðið sem ég fer á í næstu viku. Var hraustur eins og hestur enda ekki við öðru að búast...hehehe
Þetta er risa borg (allavega fyrir mig) með milljón manns. Borgin er eiginlega eitt stórt úthverfi og svo smá city í miðjunni með lágum háhýsum. Ég hef ekki séð eina einustu blokk og allt er byggt í litlum krúsílegum einbýlishúsum eða raðhúsum. Þetta þýðir að borgin er endalaust stór og það þykir bara eðlilegt að vera tvo tíma í strætó á dag ef þú þarft að fara eitthvað. Ég er búinn að fá minn skerf af því en þykir það nú ekki mikið eftir búsetu í dalnum góða allt mitt líf.
Í gær fór ég í innkaupaleiðangur meðan Erna fór í skólann. Erum nebblega að fara í útilegu um helgina, hlakka mikið til... Keypti tjald, svefnpoka, gasdót til að elda (n.b. takk tengdapabbi fyrir útilegupottana og pönnuna, koma að góðum notum hérna), vasaljós, áttavita etc. þannig að við ættum að vera fær í flestan sjó. Förum með krökkum sem eru skiptinemar hérna og eru með bíl þannig að þetta verður örugglega gaman. Ætlum ap fara í nokkra þjóðgarða hérna fyrir norðan borgina sem eru á svæði sem kallast Flinders Ranges. Ég er búinn að sjá borg og dót hingað til þannig að það verður gaman að fá tilfinninguna fyrir því að maður sé í Ástralíu með því að sjá kengúrur og kannski thorny devil....
Í dag er afslöppunardagur, rigndi í morgun en sólin er komin fram núna og alveg heiðskýrt, ætla að fara út í góða veðrið og lesa spænskuna mína....
Bæ
Góðan daginn allir saman.
Sorry fyrir bloggleysið hef haft nóg annað að gera.
Ferðalagið gekk ótrúlega vel og ég var kominn hingað til Ernu á föstudagsmorguninn. Gat sofið frekar lítið í flugvélinni en var alveg hissa hvað þetta tók stuttan tíma. Ferðin frá Standted til Heathrow hefði ekki getað verið einfaldari og tók rúmlega klst. með rútu. Þar hitti ég Öggu og Halldór sem voru á leið til Malaví og fínt að fá smá félagsskap. Biðin á Heathrow var samt löng og frekar leiðinleg eftir að þau fóru en það hafðist á endanum. Í fluginu til Singapore hafði ég ágætan flugfélaga við hliðina á mér þannig að þegar ég var ekki að horfa á bíó eða spila tetris þá spjallaði ég við hann.
Í Singapore var svo bið í 4 klst sem voru fljótar að líða. Samt ekki mikið um að vera þar. Fór upp á þak á flugstöðinni í kaktusagarð og vá þegar ég steig út úr byggingunni þá´var svo heitt að ég andaði bara vatni. Skoðaði kaktusana eins og sannur grasanörd og flýtti mér svo inn í loftkælda flugstöðina aftur. Flugið frá Singapore til Adelaide ætlaði síðan aldrei að taka enda. Millilent í Darwin og svo var loksins komið til Adelaide eftir langa mæðu. Ætlaði að flýta mér í gegn og hitta Ernu sem beið fyrir utan en þeir vildu endilega skoða í handfarangurinn minn og þegar þeir sáu að ég var með 2 kg af íslensku nammi þá hlógu þeir bara og hleyptu mér í gegn.
Síðan komst ég loksins í gegn um hliðið og þar beið Erna eftir mér. Frábært að hitta hana aftur:)
Veðrið hefur verið ágætt síðustu daga með sól og 20 stiga hita en verður smá kalt á kvöldin. Er ennþá að dást að öllum trjánum og páfagaukunum sem eru hér í þúsundatali og flögra um fyrir framan nefið á manni..... ótrúlegt og ekki ennþá búinn að fatta það að ég sé kominn hinum megin á hnöttinn.
Svo einn brandari í lokin sem mamma sagði mér. Hún var að vinna út í garði og Lóa Sjöfn litla frænka mín var með henni. Lóa Sjöfn var að moka holu og sagði við mömmu: Hlynur er þarna lengst niðri, og benti ofan í holuna.... hún er snilli, enda dó ég úr hlátri þegar ég heyrði þetta.
Jæja nóg að sinni. Held áfram að skrifa um þetta ævintýri og bið að heilsa ykkur öllum
Kallinn er orðinn einu árinu eldri í dag og enn styttist í ferðina.........hlakka mest til að koma til Ernu :) bara 4 og hálfur dagur þegar ég skrifa þetta.
Stærstu fréttirnar eru þær að ég er búinn að fá landvistarleyfir í Ástralíu! Þið eruð víst búin að frétta það flest en þvílíkur léttir. Núna er ég bara að bíða eftir vegabréfinu með hraðsendingu frá Berlin. Kemur á mánudaginn og þá er maður bara í sætum málum!!! Brjálað að gera við að ganga frá öllu og passa að gleyma ekki neinu. Er kominn það langt að ég lét stilla bakpokann minn nýja (sem ég fékk í jólajöf frá Ernu:)
með fullt af dóti í. Annars er bara búin að vera vinna á fullu og pakka dótinu hérna inni. Svo er bara gleði annað kvöld :)
Er búinn að vera hálf slappur í skrifunum þessa dagana en lofa að vera duglegur við skrifin þegar ég verð kominn til Ástralíu.
Ciao að sinni