<$BlogRSDURL$>
Ástralíuhrúturinn
Thursday, September 23, 2004
  Hi allir saman!
Erum a lifi i Vestur Astraliu, erum samt ad steikjast ur hita!!!
Buin ad vera mikil keyrsla a okkur en vid erum buin ad sja mikid og margt!
Fullt af wildflowers, Emu med litla unga, kengurur, hofrunga, saekyr!!!, skjaldbokur, Thorny devil og koral og fullt af fiskum her i Ningaloo Reef. Erum nuna stodd i Exmouth og koralrifid er bara rett ut fra strondinni. Forum ad snorkla i dag en tvi midur var svoldill vindur. Horkudum af okkur og saum fullt af koral og fiskum, m.a. Nemo og vini hans:)
Aetlum ad fara til Coral Bay a morgun og vera tar i tvo daga og halda sidan sudur fyrir Perth. Erum nu tegar buin ad keyra um 2000 km a 5 dogum, en hofum lika sed otrulega mikid!!!
Er half dasadur eftir daginn, of mikil sol og hiti fyrir vikinginn!!!
Bid ad heilsa haustlaegdunum heima....
Ciao
Greifinn
 
Monday, September 06, 2004
  Maður er bara að verða alvöru ástrali. Fórum á Footy leik í gær. Hvað gæti verið meira ástralst? Hittumst nokkur fyrir leikinn, sátum fyrir framan leikvanginn og borðuðum og drukkum bjór með öllum áströlunum. Vorum ekki eins fancy og þeir með barby (grill) og alles en samt sem áður gaman. Horfðum síðan á æsispennandi leik milli Port Adelaide og Geelong. Þetta var mikilvægasti leikur PA ever og var sett met í áhorfendafjölda, 40.000 manns!!! Ég og Erna vissum lítið sem ekkert um reglurnar en sátum með Ed og Phoebe og þau sögðu okkur undan og ofan út á hvað þetta gekk. Þetta var hin besta skemmtun og sjaldan sem ég hef séð annan eins hanaslag. Þetta er ansi rough íþrótt þar sem menn kýla hvorn annan hiklaust!!! Var samt lítið um slagsmál á þessum leik... Og okkar lið vann, veiveivei
Var að vinna í dag hjá sama kalli og í síðustu viku. Er búinn með þennan stað í bili og er feginn. Tók mig um klukkutíma og korter að fara aðra leiðina í vinnuna.... Hérna eru vegalengdirnar gríðarlegar. Það að eiga heima upp í dal og keyra 20 mín niðrí bæ er nothing miðað við hérna.
Vinna á tveimur stöðum á morgun í garðyrkju og svo á miðvikudaginn og svo er maður bara kannski í fríi á fimmtudaginn, aldrei að vita. Svo erum ég og Erna að fara að vinna saman á föstudaginn. Allt brjálað að gera og peningarnir streyma inn....
Er langt eftir á í myndunum sorry...
Verð að vera duglegri að sortera og setja eitthvað inn.
Hlýtur að gerast bráðlega.
Ætla að drífa mig að elda eitthvað skemmtilegt...
Sjáumst þegar við náumst
 
Saturday, September 04, 2004
  Góðan daginn!
Hér er allt í þessu glimrandi fína. Vikan er búin að vera busy hjá mér með vinnur á hverjum degin nema þriðjudaginn. Hef verið að fara í garða hjá fólki og gera hitt og þetta. Í gær fórum ég og Erna svo að vinna fyrir Anglican Church sem er að halda markað í dag. Markaðurinn heitir Trash and treasure og ber hann nafn með rentu. Við byrjuðum að setja upp borð og svo fluttum við drasl úr einhverjum skúr inn í safnaðarheimilið. Þetta var hin hressilegasta vinna og allt fólkið var mjög vinarlegt. Við fegnum $20 á tímann og vorum mjög ánægð með það. Ég er svo að fara aftur að hjálpa til við að ganga frá núna á eftir.
Erna og Suvi vinkona okkar héldu svo afmælisveislu í gær. Fengum að halda partý í húsi hjá annari vinkonu sem býr ansi hreint vel í risahúsi. Skemmtum okkur konunglega og fórum svo í bæinn á stað sem átti að spila '80 tónlist. Þetta var ekki alveg sama þema og við héldum því þeir spiluðu mest '80 rapp svo sem MC Hammer og Ice T ofl. Tónlistin var samt funky og við dönsuðum fram á rauða...
Allt að gerast með vinnur hjá mér. Er eiginlega planaður með vinnur næstu tvær vikur sem er frábært.
Svo er bara Perth ferðin að nálgast, verðum að fara að reyna að skipuleggja hana!!!
Jæja best að fara að vinna...
 
Spjall um daglegt líf nálægt minni heittelskuðu
Tenglar
Ástralíukindin

Erna

Systurnar

Ásdís
Kristín

Myndir

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com