Ástralíuhrúturinn
Maður er nú bara bissí krissí þessa dagana.........
Helgin ver pökkuð af dóti og manni leiddist ekki á meðan! Partý á föstudagskvöldið, snérist samt upp í að grasanördarnir (þ.á.m. ég) töluðum um furur og whatnot meðan restin talaði um barnarúm..........frekar steikt. Var nú ekki lengi því ég var með nemendatónleika á laugardagsmorguninn. Þeir gengu mjög vel og var ég bara sáttur við nemendurna mín. Einn kennarinn hrósaði mér fyrir frammistöðuna þannig að ég var býsna montinn með mig!!! Var síðan í hellulögnum allan daginn þangað til ég fór að vinna í Austurbæ um kvöldið. Rétt kíkti síðan á fjölskyldudjamm en var frekar þreyttur þegar þar var komið við sögu og fór fljótlega heim að sofa. Sama hvað ég er þreyttur og lúinn alltaf þarf ég að vakna snemma...........Erna kannast við þetta.....Var að deyja úr þreytu eftir laugardaginn en minn þurfti að opna augun á slaginu 8 á sunnudagsmorgni. Náði síðan að sofna aftur og svaf þá til 10 sem þykir bara vera frameftir hjá mér....Las uppi í rúmi til hádegis og hafði það gott. Er að lesa bók eftir Murakami, Wind-Up Bird. Frekar steikt og skemmtileg. Fær mig til að vera mjög pirraðann stundum út í aðalpersónuna en ég held að höfundinum sé þá að takast eitthvað með þessu...spenntur að vita hvernig hún endar.....
Fór í fermingarveislu hjá Orra Rafni frænda mínum í gær og skellti í mig kökum í óhófi (ég borðaði fyrir þig líka, Erna). Svo var bara markaðsfræðiverkefni fram á nótt. Náði að nokkurn veginn klára um 1 og gat þá varla sofnað fyrir uptjúningi og auðvitað því að ég svaf "frameftir".
Lenti í mjög skrítnu í nótt, vaknaði um miðja nótt við þá hugsun að önnur höndin á mér væri dottin af eða dauð eða eitthvað. Þá var ég með svo mikinn náladofa í annarri hendinni alveg upp að öxl að ég gat ekki hreyft hana. Þurfti að nota hina hendina til þess að hrista hana til þangað til blóðið fór að streyma.........frekar vont að vakna svona, ætlaði líka aldrei að sofna aftur.
Jæja ætla að halda áfram með næsta verkefni.......
Góða kvöldið öll sömul!
Sit hér alveg að springa eftir eldamennsku. Nennti ekki að sníkja mat einhversstaðar í kvöld þannig að ég borðaði flatböku úr bónus og drakk vatn með, fínn matur!!! Búið að vera busy líf hjá mér eins og venjulega. Var á ágræðslunámskeiði á miðvikudag og fimmtudag í skólanum. Vorum með skuggalega beitta hnífa að græða plöntur af sitthvorri tegundinni á hvor aðra. Mjög gaman að kynnast þessu en ekkert sem ég myndi vilja vinna við allan daginn.... Held að Erna hafi verið mest glöð að ég slapp frá þessu námskeiði með alla útlimina ennþá áfasta..........
Eftir skil á aðalverkefni hélt ég að yrði smá pása á lærdómi en mér skjátlaðist. Er búinn að skrifa framleiðsluritgerð um Cotoneaster ættkvíslina (verð aðeins að slá um mig með latínunni :) ) og það hefur gengið ótrúlega vel. Fór í mat til tengdamömmu í gær og fékk góðan fisk. Fór síðan í badminton með Þórhalli og tók vel á. Hann vann samt tvö leiki og ég einn :( gegnur bara betur næst. Átti samt tilþrif kvöldsins þegar ég renndi mér eftir gólfinu og brenndi mig á báðum hnjám!!!
Var fyr og flamme þegar ég kom heim um ellefu í gærkvöldi og settist niður fyrir framan tölvuna og byrjaði að skrifa í framleiðsluritgerðinni. Skrifaði og skrifaði og skrifaði og á endanum var ég allt í einu búinn með helling. Hitti síðan Ernu a msn sem gladdi mig mjög og tjattaði við hana þangað til hún þurfti að fara á klósettið og í morgunmat, hélt síðan áfram með ritgerðina og kláraði allt nema lokaorð. Þá var reyndar klukkan orðin tvö en ég var ánægður með að nýta kraftinn þegar hann kom. Ætla að reyna að klára ritgerðina núna áður en ég fer í partý, veivei
Annars er ekki mikið um djamm í kvöld, verð að mæta virðulegur kennari klukkan 10 í fyrramálið og hlusta á saxafónnemendurna mína spila á nemendatónleikum, gaman gaman.......
Í dag fór ég að helluleggja hjá Birni á Gróanda, fór síðan í útréttingar á þjóðskrá, LÍN og hitti síðan Unu Björk systur í hádeginu og kjaftaði frá henni matartímann....sorry Una Björk!!!
Annars á hún þökk fyrir að stússast í málum fyrir mig og Ernu. Búin að útbúa voðafínt bréf sem Hildur þarf að undirrita í sambandi við dvalarleyfið mitt í Ástalíu og síðan var hún líka að útbúa vottorð um að við séum tryggð hérna á Íslandi þannig að við þurfum ekki að borga slatta af péningum!!!! Takk Una Björk :)
Kennslan gekk vel í dag, þjarmaði vel að krökkunum og lét þau spila tónstiga allan tímann hehehehe.......
Framundan er helgi pökkuð af dagskrá, partý í kvell, nemendatónleikar í fyrramálið og vinna eftir það á Gróanda, vinna í Austurbæ á barnum um kvöldið og fjölskylduskemmtun eftir það. Sunnudagurinn verður læridagur með Guðrúnu Björk í Markaðs- og rekstrarfræðiverkefni (gleðigleðigleði......) og síðan ferming hjá Orra Rafni frænda mínum! Mykke at gjöra
Hafið þið það gott um helgina öllsömul!!!!
Góða kvöldið!!
Búinn að skila aðalverkefni og það er mikil gleði! Var að vinna í því þangað til 2 um nóttina áður en ég skilaði en er ágætlega sáttur. Svo tók bara við markaðs- og rekstrarfræðiverkefni sem gildir 100% í einum áfanganum, gleði mikil og skemmtileg eða hitt þó heldur.... En það sem ekki drepur mann herðir mann bara!!! Er að bóka flug til Ástralíu í þessum töluðu, Erna er að breyta sínum miða svo við getum farið með sama flugi heim. Væri nú fyndið að fara með sitthvoru fluginu heim yfir hálfan hnöttinn.....eða ekki!!!!
Svo maður er bara að skella sér 5. maí út. Þá er maður búinn að vinna af sér....já afturendann og fer bara í gleðina...
sí jú leiter!!!
Ciao allir saman...
þá er maður bara í slökun á laugardagskvöldi. Búinn að vera á fullu síðan síðast og síðan er bara aðalverkefni á morgun. Fór á voða fanzy ráðstefnu á fimmtudag eftir hádegi á vegum skólans. Gróður er góður var yfirskriftin, mikið stuð......grasanördinn ég!!!:) Well þar voru Guðni og Sif og ég náttúrulega, + Ísólfur Gylfi sem var þunnur eftir 50 afmælið sitt deginum áður. Svo var kaka og fínerí en samt hálfgert blaður allan tímann. Andri Snær kom og var með hugleiðingu. Veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þennan spaða en honum tókst alla veganna að fá mig til að hugsa..............um það hvað eiginlega í veröldinni hann var að blaðra um... Talaði um rollur og svínakjöt með prumpulykt og síðan sagði hann e-ð um skóg sem hann plantaði en restin var bara tóm steypa. Hef ekki lesið bækur eftir hann þannig að ég ætla ekki að dæma hann eftir því en líst ekkert vel á þennan gæja! Svo var Margrét Frímanns að skamma okkur fyrir að vera ekki með nægilega stéttarvitund, þið vitið "við garðyrkjufræðingarnir". Mér fannst það athyglisvert hjá henni og í leiðinni fyndið að hugsa til þess að vera farinn að tilheyra e-i stétt, maður er víst að verða fullorðinn þó ég segi bara að ég sé bara strákur...
Eftir ráðstefnuna fórum við í bjór og hvítvín í orkuveituna. Skoðuðum hús dauðans og allt sem er þar í kring, þokkalega ekkert til sparað þarna... Hugsaði samt með mér að ef þeir settu ekki milljónir í e-a hleðslu þá gerði það örugglega enginn... Fékk mér bjór og var glaður, haha
Síðan matur hjá tengdamömmu. Alltaf jafn gaman að fara til hennar í mat. TAKK KRISSA!
Föstudagurinn var smá leti allavega fyrripartinn. Fór í sund í laugardalinn og synti 1,2 km og var síðan í sólbaði í 1 1/2 tíma. Lokaði bara augunum og hugsaði um Ernu........:)
Um kvöldið var reunion hjá lúðasveitinni......nei bara grín (alltaf í 5 aurunum)...lúðrasveitinni í Hlégarði og það var mjög gaman. Hitti fullt af fólki sem ég hef ekki séð í mörg ár. Rifjuðum upp utanlandsferðir og fleira skemmtilegt.
Dagurinn í dag var aðallega endurhæfing eftir gærkvöldið en síðan fór ég á afmælistónleika lúðrasveitarinnar í Íþróttahúsinu. Það var mjög gaman og spilaði með á barítónsax (eins og Lisa Simpson) sem er næstum því jafnstór og ég. Fór síðan að vinna á barnum í Austurbæ.
Nú er ég bara í slökun að horfa á imbann sem ég hef ekki gert lengi en ætla að klára aðalverkefnið á morgun. Skil á þriðjudaginn þannig að síðasti séns að gera e-ð og láta Ernu snilling og mutter lesa yfir og laga og bæta svo ég fái góða einkunn!
Er að tala við Ernu sætu á msn núna
Sjáumst
Gleðin heldur áfram...
Er að rembast í aðalverkefni eins og venjulega. Þetta er nú allt að koma, skila þessu á næsta þriðjudag og þá verður gaman. En það tekur varla betra við því þá eru eftir tvær ritgerðir, fyrirlestur og próflestur......það er ekki hægt að segja annað en maður sé upptekinn. Sagaði nokkrar aspir 10m háar mér til hressingar í garðinum þegar ég kom heim. Þurfti að fá útrás fyrir pirr og stress út af visa til Ástralíu, fínt að láta þetta bitna á trjánum og álfunum sem búa í þeim. Svona getur maður verið vondur! Sem sagt vinnuvisað sem ástralinn ætlaði að redda mér gengur ekki en þá er bara að fara næstu leið. Erna ég kem til þín þó ég þurfi að synda til Ástralíu........
Kann ekkert ennþá á þetta blogg. Hef reynt að setja inn e-ð dót en það virkar ekki. Erna kenndu mér á þetta!!!!
Verð að halda áfram með ritgerð.
Gleymdi að minnast á að litla (stóra) frænka mín Ólöf Svala átti afmæli á mánudaginn og ég fór í pizzu til hennar, sem var mjög gaman. Vikan hefur annars verið tíðindalítil fyrir utan náttúrulega heiminn sem ég fékk frá Ernu á afmælinu okkar og nokkur samtöl í síma og msn sem var æði...
Þakka guði fyrir tæknina sem gerir mér lífið aðeins léttara.........
Góða kvöldið!
Er þreyttur eftir erfiða helgi. Nei ekkert djamm á mínum, bara vinna og meiri vinna. Þvílík gleði en það þýðir bara að ég kemst fyrr til Ernu sætu!!!
Gerði skattaskýrsluna á föstudagskvöldið (hallóooo nei ég á mér lítið líf þessa dagana) og fór síðan í smá partý. Stoppaði stutt þar vegna þess að ég fór í Verahvergi ( já Hveragerði) kl 8 á laugardagsmorgun að vinna. Vorum að fá innfluttar plöntur frá Danaveldi og það var mjög skemmtilegt. Var í því að klippa þær til allan morguninn og svo keyrðum við þær upp í dal á garðyrkjustöðina sem ég vinn á. Í gærkvöldi vann ég á barnum í Austurbæ til 11 og kom þreyttur maður heim. Heyrði í Ernu í síma og gat sofnað glaður...
Í dag vaknaði ég svo við vorið!!! Fuglasöng og fínerí! Gummi hinumegin bauð mér í nýbakað brauð úr bakaríinu og kaffi, það var ljúft. Var að vonast eftir því að þurfa ekki að vinna en viti menn kl 9:55 hringdi síminn og vinna var það. Var þó bara stutt, frá 10-14. En þá kom ég við hjá mutter, klippti hekk hjá henni og fékk pönsur í staðinn, góður díll það. Og ekki nóg með það heldur klippti ég líka hérna í þessum huge garði og er bara rétt byrjaður. Var að klippa þangað til 18:30 og þá fór ég í mat til tengdamömmu. Hitti þar Siggu Ernusystur og kærastann hennar, Kára og við spjölluðum heilmikið saman og það var gaman...haha!!
Nú bíð ég bara eftir því að Erna vakni út í Ástralíu, eigum nebblega date á msn.............
Kveð að sinni
Sjáumst þegar við náumst.
Ciao!
Er nú ekki duglegur að skrifa en búið að vera brjálað að gera þessa vikuna. Fékk út úr prófi í morgun, er latínusnilli með 10 :)
Er annars búinn að læra, synda, læra og synda og læra aðeins meira alla vikuna. Keeping busy til að láta tímann líða hraðar þangað til ég hitti Ernu.
Er enn að berjast bæði við háskólann í Sverige að fá forkröfur í háskólanám og líka hvort ég fæ atvinnuleyfi í Ástrallalíu... getur verið smá þreytandi að vesenast svona og fá lítil sem engin svör. Nú styttist í skil á aðalverkefninu mínu, 23. mars og er allt á fullu að vinna í því. Þegar það er svo búið eru það tvær styttri ritgerðir og fyrirlestur, svo byrja bara prófin 5.apríl. Þannig að ég hef nóg að gera. Er búinn í prófum 14.apríl og þá styttist í Ástralíuferðina mína...gaman gaman get varla beðið eftir að hitta Ernu sætu!!!!
Var að koma úr sundi, synti 1,2 km voða dúlegur og fer síðan í mat á eftir til tengdamömmu sem er alltaf voða gaman, stjanað við mann hægri vinsti. Síðan er badminton um kvöldið!
Nóg í bili
Arivederci
Hlynur
Ciao!
Sit hér heima hálf þreyttur eftir annasama viku og nenni ekki að gera neitt!
Ætti að vera að skrifa aðalverkefni en hef ekki andann yfir mér í augnablikinu. Auk þess er huginn hinum megin á hnettinum.................
Ákvað að prófa að blogga og leyfa þeim sem vilja að njóta daglega lífsins með mér :)
Ætla að halda áfram að læra meira á þetta blogg thingy...
Jæja þá er maður kominn á netið!
Ætla að athuga hvort ég hef eitthvað skemmtilegt að segja ykkur úr mínu daglega lífi. Sé ti hvort ég verð über duglegur að skrifa............