Ástralíuhrúturinn
How are ya?
Helgin er liðin og dróg til tíðinda í köfunarmálum hjá mér. Ætlaði alltaf að taka Open Water kúrsinn (fyrsti köfunarkúrsinn) hérna áður en við fórum til Great Barrier Reef en náði aldrei að klára vegna veðurs og tíma. Átti semsagt að fá bátsferð í staðinn en ég hringdi í köfunarfyrirtækið í vikunni og spurði hvort ég gæti tekið Advanced í staðinn. Það var tekið vel í það og ég bara drifinn í köfun á laugardaginn. Vissi ekkert hvað ég væri að fara að gera en þetta var allt saman mjög chillað. Lærði semsagt að kanna svæði með áttavita. Svo var seinni köfunin svokölluð Naturalistic köfun. Þar átti ég að kafa og nefna allaveganna 10 tegundir af fiskum, 5 af plöntum og 5 af sjávardýrum. Það var mjög skemmtileg köfun, sá fullt af fiskum og gáfum þeim líka að éta. Náðum semsagt í alsaklausan skelfisk á botninum og opnuðum hann. Fiskarnir urðu alveg óðir og þeir voru bara nokkra sentimetra frá mér. Awesome dude!!! Já gaman að fá að kafa og læra meira. Verður líka gott að vera með sama skírteini og Erna, því þá getum við kafað meira saman:)
Gærdagurinn var bara rólegur, sofið fram eftir og svo fórum við í sund. Ég rétt náði að synda 1,1 km en Erna var öflug og synti 1,2 km. Fín útilaug hérna rétt hjá. Upphituð og allt en samt enganveginn eins góð og sundlaugar Íslands.
Vikan framundan ætti að vera góð fyrir mig. Fór að vinna í dag hjá Greg moneykalli. Held áfram að dytta að nýja skrifstofuhúsnæðinu hans. Verð svo líklega með vinnur á þri, mið og fim og svo er bara ferðalag um næstu helgi. Erum semsagt að fara til Kangaroo Island, þriðja stærsta eyja Ástralíu og besti staðurinn til að sjá fullt af dýralífi eins og sæljón, loðselir og fairy mörgæsir.
Dagurinn var óvenjuheitur, um 31°C og þegar ég kom heim þá röltum ég og Erna á ströndina. Sáum fallegt sólarlag og svo voru bara 4 höfrungar að leika sér um 50 m frá ströndinni, wicked!!!
Kíkjið endilega á myndasíðuna, settum inn fullt af nýjum myndum af daglega lífinu hérna í Adelaide, m.a. íbúðinni ofl skemmtilegu.
Cheers mates
Hæ litli!!!
Hvað segið þið þarna á hjara veraldar.
Hér er allt í sama gírnum eins og venjulega. Ég er ennþá að venjast því að fara í stuttbuxum og hlýrabol í vinnuna, á ekki eftir að gerast heima. Búið að vera mjög gott veður hérna, 25-30°C sem er fínt fyrir mig. Er líka búinn að vera duglegur að fara á ströndina eftir vinnu, tek yfirleitt strætó heim úr vinnunni til Glenelg sem er í hálftíma göngufæri frá okkur. Frábært að geta farið úr skónum og gengið í sjónum og kælt sig aðeins niður.
Vorum að kaupa flug til Tasmaníu áðan og förum semsagt þangað 26. nóv. Hringdi í íslenska konu sem býr í Tamaníu í gær. Hitti hana á Íslandi fyrir algjöra tilviljun í febrúar og hún bauð okkur gistingu. Vissi ekki hvar hún býr í Tasmaníu en þvílík heppni að hún býr í Launceston akkúrat þar sem við fljúgum. Hún var þvílíkt jolly og bauð okkur að gista og geyma dót þegar við förum í gönguna. Þvílík heppni og íslensk gestrisni nær greinilega út fyrir landsteinana.
Lítur út fyrir að góða veðrið í Adelaide sé að hjaðna því um helgina á bara að vera um 20°C hiti.
Ég er agalegur, sorry hvað ég er að stríða ykkur svona hehehehehe
Sendi ykkur bara hlýja strauma heim
Bæ
Hlynski
How are ya!
Önnur túristahelgi í Adelaide er að líða. Fórum í borgarferð í gær með Suvi og Magnus vinum okkar frá Sverige og Finland. Byrjuðum að plana Tasmaníu með því að fara á bókakaffi og lesa hellinga af ferðabókum. Röltum svo um borgina, fórum í surferbúðir, kaffihús og skoðuðum artgallerie. Sáum mjög disturbing list frá einhverjum rússa sem hefur drukkið svoldið mikið af vodka. Listin var semsagt mynd á skjá þar sem fullt af nöktu fólki lá í fósturstellingunni og nuddaði hvort annað....
Röltum síðan í góða veðrinu við ána sem rennur í gegnum borgina og fórum svo í norður Adelaide þar sem er fullt af veitingastöðum og börum. Chilluðum þar, drukkum bjór og sáum ótrúlega liti í sólarlaginu frá svölunum. Enduðum svo út að borða í steikhúsi og fengum okkur svaka steikur. Já semsagt algjör snilla afslöppunardagur í borginni.
Í dag var svo alvöru aussi dagur við ströndina. Við hittum nokkra vini okkar og grilluðum á útigrillum sem eru í garði við ströndina. Þetta er sem sagt mjög ástralskt fyrirbæri og þurftum við að standa í biðröð eftir að komast á grillið. Sátum síðan í sólinni og spjölluðum og ég og Ed fórum í frisbee. Skellti mér svo aðeins í sjóinn til að kæla mig en Erna lét það vera enda sjórinn svoldið kaldur ennþá. Röltum svo við hjá Greg vini mínum sem ég hef verið að vinna fyrir og náði í launin mín. Lentum þar í ástralapartýi þar sem fólk sat og sumblaði vín og bjór. Við vorum skemmtiatriði með sögum af lestarferðalögum okkar um Ástralíu og skrítnum hlutum frá Íslandi. Mjög gaman að detta inn í partý hjá áströlum!
Sáum réttsvo endann á 101 Reykjavík sem var sýnd í sjónvarpinu hérna í gærkvöldi. Mjög gaman og skrítið að sjá íslenska mynd með enskum texta og við vorum hálfrugluð á þessum.
Framundan er svo funpacked vika með fullt af vinnu, góðu veðri og dásamlegheitum:)
Bið að heilsa ykkur öllum
Ice!
Hæ allir sama:)
Loksins koma einhverjar línur frá drengnum...
Skrifaði blogg í fyrradag, langt og flott og var að fara að publisha það þegar kreditið á fyrirframgreidda internetinu okkar var búið og bloggið fór sína leið...
Ég er kominn í sæt mál! Búinn að vera að vinna fyrir athafnarmann sem býr í sama hverfi og við. Fékk vinnu hjá honum í gegnum vinnumiðlunina í Uni að mála fyrir síðustu helgi. Hann var svo ánægður með mig að ég vann hjá honum í gær og í dag. Hann er semsagt að færa skrifstofuna sína í nýtt húsnæði og ég er búinn að vera altmuligt man að gera hitt og þetta þó aðallega mála. Svo er ég örugglega með fleiri job hjá honum á næstunni. Hann á eftir að gera garðinn fyrir framan nýja skrifstofuhúsnæðið og hann ætlar að láta mig sjá um það!!!! Var annars að vinna hjá honum í gær fyrir hádegi í loftkældu umhverfi. Hann bölvaði veðrinu og sagði að þetta væri óveður. Það var semsagt heitasti októberdagur í 17 ár, 37,6°C!!!!! Fór að vinna úti í garði á öðrum stað eftir hádegi og váááaá hvað var heitt. Ég er að tala um að vindurinn var líka heitur. Ég var voða smart með hatt og bar á mig helling af sólarvörn og drakk lítrana af vatni. Þegar ég var búinn þá tók ég strætó heim og fór út hjá ströndinni, fór í stuttbuxur og úr skónum og kældi mig í sjónum, það var sko gott!!!
Fórum að skoða Adelaide meira um síðustu helgi. Erum semsagt með markmið að sjá meira af þessari borg núna þegar við erum búin að sjá eiginlega allt annað í Ástralíu. Fórum með Ernu Sig og Viktoriu Guðrúnu (hin Ernan í Adelaide) til Morialta Falls. Fórum bara í stutta göngu en á leiðinni sáum við kóalabjörn chilla uppi í tré sem var geðveikt. Náðum líka vatni í fossinum en hann er yfirleitt þurr meirihluta ársins. Eftir þetta fórum við í vínsmökkun og svo keyrðum við upp á útsýnisstað yfir borgina og fengum okkur kaffi. Mjög skemmtilegt og gamað að hitta Ernu Sig og tala íslensku allan daginn!!!
Sendi hlýjar kveðjur í kuldann
Ciao Hlynski
Hæ
Allt að gerast hérna down under!
Komum heim á þriðjudaginn frá vestur Ástralíu og ég búinn að vera á fullu að vinna síðan. Fór að vinna í gær (mið) í garði sem ég hafði séð um áður. Var ekki bara bullandi sól og hiti. Mjög gaman en að vinna við að slá garð og keyra mold í 30°C og 40°C í sólinni er ekkert grín. Ég þambaði vatn og bar á mig 30+ sólarvörn á klukkutíma fresti. En mjög gleðilegt annars að það sé farið að hlýna hérna. Var svo að sjá veðurspánna áðan. Helgin verður svöl með um 20°C hita en á mánudaginn á hitinn að vera 30°C og á þriðjudaginn 34°C, geggjað!!!
Fór á tvo staði að vinna í dag. Annar staðurinn er uppi í hæðunum umhverfis borgina. Frábært útsýni þaðan og flott umhverfi með háum Eucalyptus trjám. Já þetta var semsagt voða fancy arfareitingar job. Konan bað sérstaklega um umhverfisfræðistúdent en ég kom til greina. Á semsagt að reita bush (villt svæði) og passa að taka ekki native plöntur en fjarlægja allt hitt. Þetta er risa svæði þannig að ég verð örugglega með 2 daga vinnu í næstu viku að gera þetta. Samt hálf krípí að vita til þess að þarna er fullt af snákum og síðan átti ég líka að passa mig á bull ants en það eru risa maurar, um 4cm sem bíta mann ansi fast. Það er semsagt fullt af maurabúum í þessari brekku, mjög skemmtilegt.
Um daginn var ég líka að vinna í garði að taka upp hellur og sá þá könguló, Red Back Spider, gaurinn við hliðina á mér sagði mér að stíga á hana og ég gerði það. Fékk síðan að vita eftir á að maður þarf að fara á spítala ef þessi tegund bítur mann, jæks!!!
Held að Lilja systir myndi ekki meika það lengi innan um þessi kvikindi.....hehehehe
sjáumst þegar við náumst
Hlynski
Hæ
MYNDIR KOMNAR!!!
Þetta er semsagt seinni hluti ferðarinnar til Perth. Fyrri hlutinn kemur seinna!!!
G´day mates!
Hér kemur smá skrif frá Perth, höfuðborg V-Ástralíu. Erum semsagt stödd hjá Auðbjörgu en það er vinkona Jóhönnu sem er vinkona Ernu. Hún og Erlend kærastinn hennar eru búin að vera frábær, tóku á móti okkur þegar við komum frá Adelaide og buðu okkur gistingu. Síðan komum við úr road trippinu á fimmtudagskvöldið til Perth og erum búin að fá húsaskjól hjá þeim síðan. TAKK!!! :)
Já erum búin að sjá mikið og margt hér í vestrinu. Byrjuðum á því að fara norður fyrir Perth alla leið til Exmouth og Coral Bay. Þar vorum við í tropical veðri og snorkluðum á Ningaloo rifi. Það var ótrúlega flott og sáum við mun meiri liti í kóralinum heldur en á Great Barrier Reef. Sáum líka fullt af fiskum og voða gaman. Lágum líka í sólbaði á ströndinni inn á milli og erum voða brún og sæt. Hápunktur ferðarinnar þarna upp frá var svo skoðunarferð sem við fórum með. Tókum bát í 5 klst. ferð um rifið. Snorkluðum í sjónum á tveimur stöðum, var soldið kalt (um 20°C brrrr) en sáum fullt af fiskum og litríkum kóral. Svo voru þeir með flugvél á lofti sem spottaði Manta Rays sem ég held að heiti djöflaskötur á íslensku. Þegar flugvélin fann þær þá þurftum við að vera fljót út í vatnið og elta einn leiðsögumanninn. Ég og Erna vorum mjög spennt og vorum ekki alveg viss hvað við værum að fara að upplifa. Þegar ég kom út í vatnið og leit niður þá sá ég ógleymanlega sjón. Þetta voru tvær djöflaskötur, ein um 3 m á breidd og önnur 5 m!!!!!! Ótrúlega stórar skepnur og liðuðust þarna um hafið í rólegheitum. Syntum með þeim í um 20 min sem var ótrúlegt og hef ég sjaldan upplifað annað eins. Eftir þetta sáum við hvali frá bátnum og einnig fullt af skjaldbökum og nokkra höfrunga. Þetta var alveg magnað!!!!!
Eftir Coral Bay fórum við af stað suður og komum við á mjög skrítnum stað rétt fyrir ofan Perth sem heitir The Pinnacles. Þetta eru semsagt fullt af skrítnum steinum sem líta út eins og milljón legsteinar. Vorum þar í sólarlaginu og náðum góðum litum.
Næst á dagskrá voru Stirling Ranges en það er fjallgarður fyrir sunnan Perth. Keyrðum þangað og fórum í Scenic drive sem ástralarnir eru mjög hrifnir af. Það var allt í lagi en mest gaman að sjá kengúrurnar út um allt. Gistum á frábæru tjaldsvæði hjá Kiwi (nýsjálendingur). Næsti dagur fór svo í fjallgöngu upp á hæsta tind fjallgarðsins Bluff 1073 m. Þetta var skemmtileg fjallganga, svoldið brött á köflum en útsýnið var vel þess virði þegar á toppinn var komið.
Eftir þetta keyrðum við niður til Walpole en þar er staður sem heitir Valley of the Giants en þar er risa Karri skógur en það er ein tegund af Eucalyptus. Ég var mjög spenntur að sjá öll þessi stóru tré og vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast. En þvílíkir risar, enda með stærstu trjám í heimi. Sáum meðal annars 89 m hátt tré, annað með 24 m UMMÁL hversu klikkað er það..... og svo fórum við í tree top walk en það náði 40 m hæð og var það alveg nóg fyrir mig.
Í gær fórum við með Auðbjörgu og Erlend til Rottnest Island en það er lítil eyja fyrir utan Perth. Hjóluðum um eyjuna og skoðuðum landslagið og dýralífið. Mest gaman var að sjá Quakkas en það er pínu lítið pokadýr sem lítur út eins og blanda af rottu og kengúru.
Dagurinn í dag var svo chill í borginni og Fremantle þar sem við höfðum það notarlegt í góða veðrinu.
Framundan er svo gríðarskemmtileg lestarferð til Adelaide sem tekur frá hádegi á morgun til 7 á þriðjudagsmorgun.
Jæja nóg í bili
kveðja frá jólasveininum