<$BlogRSDURL$>
Ástralíuhrúturinn
Monday, August 30, 2004
  Hæ litli!
Þá er komið að bloggi aftur, sorry hvað er langt á milli hjá mér....
Komum til baka frá Sydney í gær eftir vikudvöl þar. Skemmtum okkur mjög vel og sáum margt og mikið. Fengum sól og 20+ hita allan tímann sem var mjög gleðilegt. Fórum m.a. á Bondi Beach, Manly Beach, Darling Harbour og ég eyddi tveimur dögum í grasagarðinum:)
Fórum síðan einn dag í Blue Mountains en það er 2 klst lestarferð frá Sydney. Þar löbbuðum við slatta og nutum útsýnis og litarins. Það er ótrúlega mikið af Eucalyptus þarna og í hita dagsins þegar sólin skín á laufblöðin þá gufa olíur upp af þeim og maður sér blákennda slæðu yfir öllu, magnað. Svo vorum við líka bara að hamborgarast (eða var það heims- haha), fórum í Aquarium sem var algjör snilld. Sáum m.a. hákarla, manta ray, Lion Fish, fullt af Nemo og endalaust meira. Einn daginn gengum ég og Erna í barndóm aftur og fórum á 3d bíó. Það var meiriháttar, sáum mynd sem heitir Ocean Wonderland og var tekin á Great Barrier Reef og Bahamas. Hef aldrei farið í svona bíó áður og var alveg heillaður. Ég skal setja fyndna mynd af mér og Ernu með 3D gleraugu á nefinu.
Erum alveg að verða svoldið mikið þreytt á lestarferðum en eftir þrjár vikur förum við til Perth með lest sem tekur tvo daga, MAMMA MIA!!! Lestarferðin frá Sydney var frekar löng en sem betur fer hafði ég góða bók að lesa, Da Vinci Code!!!! Aumingja Erna þurfti að læra:( en við komumst á leiðarenda eftir 26 tíma lestarferð. Ég ætla alveg örugglega að kaupa mér svefntöflur fyrir næstu lestarferð svo ég geti sofið eitthvað! En hvað er ég að kvarta, fengum lestarferðirnar á 450 buck sem er ótrúlegt verð og erum líka að nota miðann til hins ýtrasta!!!!
Vorum að vonast eftir að veðrið væri orðið betra í Adelaide þegar við komum en er enn bara 15°C. Vonandi fer nú að hlýna aðeins...hehehehehe.
Gleymdi að segja ykkur fyndnasta ever, við vorum að borga leiguna um daginn og þá létu landlordarnir okkur fá litla grein úr dagblaði dagsins. Hún var um Ísland og hún hljóðar svo:

Iceland Thaws
REYKJAVIK: Iceland´s capital experienced its hottest day on record yesterday as temperatures hit 24,8°C. The weather was caused by slow-moving Hurricane Alex, wich hit the east coast of the US last week, said Iceland Meteorological Office spokesman Thorsteinn Jonsson.

Hvað segið þið um þetta, Ísland meikar það bara í blöðin hérna!!! Ástralarnir hafa örugglega hlegið af sér fótlegginn að lesa þetta, 24,8° heitast......

Fór að vinna í dag. Tók garð í gegn og hafði gaman af. Á eftir að sjá um þennan garð á næstu mánuðum þannig að ég fer kannski einu sinni í mánuði eða oftar, fínt!!!
Já þá kveð ég að sinni frá frá Gondwanalandi.
Gangið hægt um gleðinnar dyr og bíðið spennt eftir myndum frá Sydney sem gætu komið inn mjög svo fljótlega....

 
Wednesday, August 18, 2004
  G´day!
Hér er allt í þessu fínasta. Ég er búinn að hafa nóg að gera í vikunni. Byrjaði á því að vinna í garði hjá írskri konu og færði rósir allan daginn. Komst að því að rósir eru í blóma hérna 9 mánuði á ári!!! Enda eru flestir garðar með fullt af rósum. Konan var mjög ánægð með grasanördinn og ætlar að hringja í mig aftur eftir tvær vikur en þá þarf hún að gera meira í garðinum. Í gær og í dag var ég svo að vinna á campus í Uni hjá Ernu, við að telja fólk í strætó. Það var rólegheita vinna, sat og las allan daginn og taldi öðru hverju. Erum að fara í viku til Sydney á föstudaginn og lítur út fyrir að ég sé kominn með nokkrar vinnur þegar við komum aftur þaðan.
Horfðum á Ísland - Spánn í handbolta í beinni útsendingu. Það var ansi skondið. Þulirnir voru að reyna að útskýra reglurnar og leikinn og svo báru þeir íslensku nöfnin mjög skringilega fram. Var ansi hreint spennandi og gaman að horfa á þennan leik þangað til við klúðruðum hlutunum í restina, sorglegt.
Vorum að setja inn fullt af MYNDUM frá stóru ferðinni. Eigum enn eftir að setja smá frá Cairns og Darwin en annars er best of komið inn:) Vona að þið verðið ánægð. Við erum náttúrulega búin að halda ykkur spenntum hæfilega lengi.
Best að fara að horfa á Simpson, er sýndur a.m.k. tvistvar á dag:)
 
Tuesday, August 10, 2004
  How'sitgoing mates!!!
Sorry hvad er langt sidan eg bloggadi....
Ja eins og ma lesa hja Ernu ta erum vid komin i Adelaide aftur i frekar kalt umhverfi. Vorum i Darwin i nice 30 gradum en komum herna i 10-15 gradur. Ja tad er kalt!!! Og sem meira er tad er buid ad rigna tvilikt mikid (a astralamaelikvarda), og eru allir voda anaegdir med tad tvi vatnsbirgdir borgarinnar fyllast.......tetta er alveg gjorsamlega nytt fyrir islendingana, vatnsskortur....
Eg sagdi vid Ernu i gaer tegar eg fekk mer vatnssopa ur krananum og fannst eins og eg vaeri ad drekka sundlaugarklorvatn, ad eg aetli ad drekka badkar af islensku fjallavatni tegar eg kem heim!!!!!
Ja annars er madur a fullu herna i atvinnuleit. Er buinn ad fa nokkrar casual vinnur i naestu viku sem er gott. I gaer for eg borgina a enda med umsoknir, vona ad eitthvad komi ur teim. A sunnudaginn er eg ad fara ad snyrta gard hja einhverju folki og a trid og mid er eg ad fara ad telja folk herna a campus, eitthvad tengt straeto, gaman gaman. En eg er rosa anaegdur ad geta fengid eitthvad ad gera. Vinnuumhverfid herna er svoldid odruvisi en heima. Eg hringi a fullt af stodum og oft er algjorlega naudsynlegt ad eiga bil, lika naudsynlegt ad vera allavega 12 manudi ofl. Best er ad fa vinnu i gegnum vinnumidlunina i skolanum og er tad oft svona casual vinna einu sinni. Tad er lika kostur vid tad tvi ta getum vid farid i fri til Vestur Astraliu, Kangaroo Island ofl sem vid eigum eftir ad gera....
Erum ennta ad reyna ad na okkur nidur eftir tessa mognudu ferd okkar, lofum ad fara ad setja myndir a netid, ja tetta bara gengur ekki lengur....
Svo er madur bara brunn og toffaralegur eftir alla tessa sol.
Fretti ad vaeri hitabylgja heima, 20 gradur a nottunni....jaherna
Her er ansi kalt inni hja okkur a kvoldin, erum med oliukyndiofn og reynum ad nota hann tegar vid forum ad sofa annars sitjum vid bara undir saeng tegar vid horfum a tv. Ja tad, keypti tv og dvd a 9000 kr isl. Getum selt tad aftur tegar vid forum fyrir 50% tannig ad tetta voru mjog odyr kaup!!! JA sjonvarpid er 21"!!!!!!
Bid ad heilsa islenska sumrinu og segid tvi ad eg sakni ad hafa bjartar naetur
BIG H (eda Mr. Iceland) eda whateverus.....
 
Spjall um daglegt líf nálægt minni heittelskuðu
Tenglar
Ástralíukindin

Erna

Systurnar

Ásdís
Kristín

Myndir

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com