Ástralíuhrúturinn
Hi
Vid erum nuna stodd i Byron Bay i sol og blidu:) Ferdin hefur gengid vel, byrjudum a Melbourne a sunnudaginn. Skodudum borgina i rolegheitum og forum a listasyningu med impressionistum eins og Monet, Manet, Van Gogh, Pissarro ofl. godum mjog gaman. Svo var Sydney tekin a tveimur dogum, operuhusid var snilli og ekki spillti vedrid fyrir, sol og bongo allan timann. I dag vorum vid a strondinni her i Byron og forum lika i gongu ut a austasta odda Astraliu, Cape Byron. Tar saum vid otrulega sjon, Humpback Wales ad synda upp i hlyjuna fra S-Astraliu. Saum ta i fjarska i gegnum sjonauka.....alveg hreint ut sagt magnad!!!!
Nu erum vid a leidinni i tjaldid okkar sem er svona halfa minutu fra strondinni:)
A morgun forum vid svo i Vatnaskemmtigard, forum tadan i Surfers Paradise og svo endum vid i Brisbain tar sem vinkona hennar Asdisar aetlar ad taka a moti okkur:) Fjolskyldan hefur sko sambond ut um allan heim:)
Well nog i bilio
Nú er farið að styttast allverulega í ferðalagið okkar og er mikill spenningur í liðinu:)
Síðasta vika er búin að líða hratt og örugglega. Á mánudaginn og þriðjudaginn var ég að vinna og skemmti mér konunglega allan daginn yfir talsmátanum á Áströlunum. Svo var komið að köfun í gær. Vaknaði fyrir allar aldir og fór með köfunarkennaranum í 30 mínútna bíltúr á köfunarsvæðið. Þegar þangað var komið sáum við fljótlega að það var ekki veður til að kafa, mikill vindur og öldugangur:( Reyndum síðan aftur í dag og ennþá sama rokrass.... já förum ekki nánar út í það.... En þetta voru mikil vonbrigði enda búinn að borga fyrir köfunarskírteini hérna til þess að geta farið að kafa á Great Barrier Rief. Er þó búinn með stóran hluta af námskeiðinu þannig að vonandi get ég klárað það uppfrá í tropical loftslagi og hlýjum sjó í staðinn fyrir roki og 14°C köldum sjó hérna. Ég segi nú bara bugger!!!
Well annars eru gleðifréttir með íbúðarmál. Erum komin með íbúð þegar við komum til baka þannig að við verðum ekki á götunni. Íbúðin er í göngufæri við strönd, aðalgötu í Uni fyrir Ernu og líka niðrí bæ. Svo er sundlaug í göngufæri líka:) og til að toppa það þá er hún ódýrari en allar aðrar íbúðir sem við höfum séð sem er gott fyrir budduna okkar;)
Hér í Townhousinu er allt á rú og stú núna, erum að pakka fyrir ferðina og stöndum í miklum vangaveltum um það hvað megi koma með og hvað ekki. Erfitt að pakka fyrir meira en mánaðarferðalag og geta tekið tvö sett af fötum... (kannski aðeins meira....)
Byrjum á að fara til Melbourne og svo til Sydney og hittum þar fyrir Íslendinga af guðsnáð, nafna minn og Beggu, hlökkum til þess að hitta þau:)
Verð að fara aftur að pakka
Reynum að vera dugleg að setja inn myndir á leiðinni en blogg verður kannski með minna móti næsta mánuðinn en fer þó eftir aðgengi að neti ofl.
Hafið þið það sem allra best.....
| H | Honorable |
| L | Little |
| Y | Yum |
| N | Nutty |
| U | Unusual |
| R | Radical |
Name Acronym GeneratorFrom
Go-Quiz.com
Já ég er lítill og hnetaður....
Jæja annar vinnudagur að baki. Rosapúl en gott að gera eitthvað gagn. Líka gaman að heyra enn meira af áströlskum húmor, var oft að drepast úr hlátri. Byrjaði á því að Ken (vinnuveitandinn) opnaði fyrir okkur klukkan 7 og það var ennþá dimmt úti. Hann stóð þarna og horfði út um allt og hrökk í kút þegar hann sá mig. Var bara að grínast því hinir gaurarnir eru allir kolsvartir og sjást varla í myrkri. Svo spurði strákurinn frá Sri Lanka mig hvort ég væri eskimói, fannst það mjög fyndið en fair vegna þess að ég veit álíka mikið um Sri Lanka eins og hann um Ísland. Eftir allt rykið í gær þá kom Sri lanka gæinn með klút með sér og batt hann fyrir andlitið. Þegar Kenny sá hann þá æpti hann upp og missti það sem hann hélt á. Sagði svo við hann að nú til dags þá ættu menn ekki að klæða sig svona sérstaklega ekki þegar menn eru með þetta litarhaft. Náunginn leit náttúrulega út eins og hryðjuverkamaður með þennan klút um andlitið....frekar brutal húmor en allir hlógu og voða gaman. Ég var kallaður Haigart the horrible í allan dag og líkaði vel. Vorum eldsnöggir að fylla gáminn og vinnan gekk mun hraðar fyrir sig en Ken bjóst við. Malaví búinn var aðallega latur en hinir strákarnir og víkingurinn (your´s truly) voru röskir.
Svo var deginum slúttað með bjór:)
Nú er bara partý framundan í kvöld, kveðjupartý hjá nokkrum sem fara heim eftir þessa önn og svo er það rólegheitahelgi framundan. Erum búin að fá heimboð í íslenskar pönnsur á sunnudaginn hjá Ernu Sig. og Joseph....hlakka til
Góðan daginn og gleðilega þjóðhátíð:)
Sorry með bloggleysið síðustu daga...
Fór í tímabundna vinnu í dag sem var mjög gaman. Vinnan felst í því að loka innréttingaverkstæði, þ.e. henda öllu út og gera hreint. Fínt en svoldið mikið ryk. Þrír aðrir strákar að vinna með mér, einn frá Sri Lanka, einn frá Malaví og einn frá Bangladesh og vinnuveitandinn kallar okkur United Nations:)
Annars eru fimm orginal ástralir að vinna þarna líka og mjög áhugavert að vera innan um þá og kynnast lífinu hérna betur. Hef sjaldan heyrt jafn mikið og fyndið blót á einum degi, good onja, f+'king bugger, bloody ferret os.frv. Svo gat enginn munað nafnið mitt þannig að ég var annaðhvort kallaður Mr. Iceland eða Haigart the Horrible sem er apparently einhver víkingateiknimyndaperóna hérna. Já þetta var mjög skemmtilegur dagur!!!
Verð að fara að drífa mig í háttin ef ég á að geta vaknað klukkan 6 í fyrramálið og verið sprækur í nýjan dag af áströlsku blóti.
sjáumst þegar við náumst
Guten Tag meine freunde!
Já það er magnað að vera í Ástralíu og hafa það gott....sorry bara rub it in haha
Hér er allt við sama heygarðshornið, ég er að fara í atvinnuviðtal á eftir og vonandi fæ ég 5 daga vinnu út á það. Annars eru bara 16 dagar þangað til við förum í ferðalagið og það þarf að taka allt dótið okkar saman og ákveða hvað á að taka með og koma hinu í geymslu á meðan. Erum að skoða íbúðir fyrir næstu önn og erum ekki búin að finna neitt ennþá. Virðist vera nóg í boði en staðsetningin skiptir máli fyrir okkur (strönd, city, uni verður að vera nálægt). Svo er ég loksins að fara að klára köfunarskírteinið mitt um helgina, hlakkar til!!! Erna er á fullu í verkefnum og prófum en ég hef líka nóg að gera með að reyna að plana ferðina okkar uppeftir. Eigum eftir að ferðast þúsundir km á mánuði en skoða margt skemmtilegt og framandi, getum varla beðið...........

You are a
GRAMMAR GOD!
If your mission in life is not already to
preserve the English tongue, it should be.
Congratulations and thank you!
How grammatically sound are you? brought to you by Quizilla
Já við systkinin erum snillar!! haha
Annars er lítid að frétta héðan. Er að vonast eftir tví að fá einhverja casual vinnu en er svoldið erfitt tví vid förum eftir rúmar trjár vikur í stóra ferðalagið okkar og margt sem ég hef séð er fyrir lengri tima. Sótti allaveganna um að vera gimp í eihverjum læknisfræðilegum tilraunum....hmmmmmm það á eftir að vera athyglisvert haha Annars tek ég bara lífinu rólega a meðan, læri um fugla og ástralskan gródur.
Og svo ein sígild ástralasetning sem maður heyrir þúsund sinnum á dag: No worries!!!!
Eitt enn, ég var að versla í vikunni í risa búð í risa molli í risa Ástralíu og bara minding my own bissnisss þegar ég heyri íslensku rétt hjá mér!!!! Alls staðar eru nú þessir íslendingar!!!!! Ég rauk náttúrulega á liðið og spjallaði við þau. Þetta eru þá hjón sem eru búin að búa í Brisbain í 4 ár og voru að flytja til Adelaide. Konan er meira að segja í master í Flinders sama Uni og Erna... Svona er nú heimurinn lítill.
já buenos tardes
Hvar var ég nú kominn...
25.maí
Vöknuðum hrikalega snemma 4:30 og héldum til Uluru að sjá sólarupprásina. Þetta var álíka magnað og sólsetrið kvöldinu áður en þó ekki eins mikið litaspil. Eftir það var frjálst að príla steininn eða fara í 9 km base walk. Uppgangan var lokuð þegar við komum og einhverjir biðu og vonuðust eftir færi til að príla. Við Erna vorum búin að velta þessu fyrir okkur hvort við ættum að fara upp og ákváðum á endanum að virða óskir frumbyggjana að fara ekki. Uppgangan er mjög brött og aðeins ein leið upp og niður. Brattasti parturinn er með keðju til að halda sér í sem er frekar sorglegt og skemmir umhverfið svoldið. Annars var base gangan mjög skemmtileg og hefði ég ekki vilja sleppa henni fyrir útsýni yfir endalausa sléttu. Annars var Uluru svo mögnuð upplifun að það er varla hægt að lýsa því. Vonandi segja myndirnar eitthvað um það. Nú var skipulagða ferðin búin og haldið í langa keyrslu til AS. Á leiðinni snarstoppaði bílstjórinn og hljóp út úr bílnum. Kom aftur með Thorny Devil (eðla). Geggjað!!!! Var nýbúinn að segja við Ernu að mig langaði að sjá hana. Myndirnar segja sína sögu!!! Komum til AS um kvöldið, þreytt, sveitt og skítug og gistum í fínu herbergi um nóttina og undirbjuggum næsta ævintýri.
26.maí
Tveir fílar lögðu af stað í leiðangur. Nú héldum við af stað í alvöru göngu. Fórum fyrst í bæinn og keyptum bakpoka handa Ernu og síðan í búðina og keyptum fullt af þurrmat. Síðan lögðum við af stað í fyrsta hlutann af Larapinta trail. Vorum frekar sein af stað, lögðum af stað kl 13:30 þannig að við gengum helminginn fyrsta daginn. Fengum rigningu (eiginlega úða ekki íslenska rigningu) sem var betra heldur en steikjandi sól. Gengum í Wallaby gap þar sem við tjölduðum. Þar var smá aðstaða og meira að segja gas til að elda á. Enn var rigning þannig að við tjölduðum undir smá skýli sem var á staðnum. Vorum svoldið sein að fara að elda þannig að það var komið niðamyrkur kl 7. Elduðum ljúffengan Thai hrísgrjónarétt og lyktin hefur farið marga km í burtu því við heyrðum Dingóýlfur í fjarska. Það var voða spennó en ekkert voða spennó þegar við heyrðum það aftur mun nær en áður. Trölluðum okkur bara inn í tjald og vorum ekkert að bjóða þeim birginn.
27.maí
Morgunmatur: ristað brauð með sultu, jummí. Nei við vorum ekki með ristavél en snilluðumst til að rista það á pönnu:). Svo var lagt af stað til Simpson Gap. Dagleiðin var bara 10 km þannig að við vorum ekkert að flýta okkur. Tókum tvo detúra og skoðuðum Scorpion pool og Fairy Springs en það var basically vatn að seytla niður steina. Mjög flott en ekkert samanborið við fossana okkar heima!!! Löbbuðum í frábæru landslagi og komum til Simpson Gap á mettíma. Settum upp tjaldið og gengum síðan inn í gilið sem var rétt hjá. Lásum skilti þar sem sagt var frá því að tegund af wallaby (lítil kengúra) ætti heima þarna í klettunum. Þetta er Black footed Rock Wallaby, tegund í útrýmingarhættu. Við gengum inn gilið og mér fannst ótrúlegt að eitthvað dýr myndi lifa í þessum grjótruðningi. Settumst niður í smá stund og horfðum upp í steinana og viti menn við sáum 4 litla wallaby hoppandi og skoppandi um steinana. Tveir voru í svaka fíling og virtust vera að leika sér. Þetta var mjög gaman að sjá og vorum við mjög heilluð af þessu. Svo var eldað pasta og farið í háttinn snemma, erfiður dagur framundan.
28.maí
Þá var það spurningin, eigum við að labba alla leiðina aftur til AS og á hostelið sem gerir um 30 km eða áttum við að labba til Wallaby gap aftur. Við vorum svaka spræk og ákváðum að labba alla leiðina. Vöknuðum um 5 en þá var bara ennþá myrkur þannig að klukkan 6 lögðum við af stað. Rétt eftir að við lögðum af stað þá sá ég hreyfingu fyrir aftan okkur og aðeins 5 metra frá okkur var Dingó (villihundur) að elta okkur. Var eitthvað forvitinn en gerði sig ekki líklegan til að gera eitthvað. Ótrúlega gaman að sjá svona dýr í návígi. Hann elti okkur í smá stund en hætti síðan við. Gangan til baka var ótrúlega erfið enda fulllöng dagganga. Við bitum samt á jaxlinn og komumst á leiðarenda með sára kálfa og hné á góðum tíma. Fórum í langþráða sturtu og nutum þess að sofa á rúmi en ekki á jörðinni.
28.maí
Heimferðin með the legendery Ghan var alltílagi og best var að fá að sjá Harry Potter og chamber of secrets. Góð upphitun fyrir nýju myndina:)
Jæja det er nu det
sí jú leiter alligator